MEN SHOWER GEL + DEODORANT
MEN SHOWER GEL + DEODORANT
Couldn't load pickup availability
- ACTIVE SHOWER GEL
- DEODORANT
- SNYRTITASKA
Active Shower Gel 200ml og Long Lasting Deodorant úr herralínu Janssen Cosmetics
Sportleg svört Janssen Cosmetics taska fylgir með.
Active Shower Gel frá JANSSEN COSMETICS er fullkomin byrjun á deginum.
Endurlífgandi og frískandi formúlan tryggir milda en áhrifaríka hreinsun á húð og hári og skilur eftir frábæra ferskleikatilfinningu.
Active Shower Gel hreinsar yfirborð húðarinnar á áhrifaríkan hátt án þess að virka þurrkandi þökk sé mildum yfirborðsvirkum efnum úr kókos og sykrum sem koma í veg fyrir að húðin þorni.
Gagnsæ geláferðin dreifist auðveldlega og myndar mjúka froðu þegar það er blandað saman við vatn og eykur þannig endingu þar sem ekki þarf að nota mikið af gelinu fyrir ríkulegt magn af froðu.
Gelið er með mildum en herralegum blæ sem lífgar upp á skynfærin og skilur eftir sig mjúka angan af krydduðum sandalviði, sítrus og jasmine.
LONG LASTING DEODORANT
Alkahól frír svitalyktareyðir með langvarandi áhrifum.
Kemur í þægilegu stifti sem rennur mjúklega yfir handakrikann án þess að valda ertingu eða óþægindum í húðinni með mildum og léttum herrailm.
Inniheldur sérvalin plöntuþykkni sem hafa þau áhrif að eyða svitalykt og sporna gegn fyrir að svitalykt myndist með langvarandi eiginleikum.
Share
